veiðum.is

Skilmálar

Síðast uppfært: september 2026

Almennir skilmálar

Með því að nota veiðum.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála. veiðum.is er markaðstorg sem tengir saman veiðifélög og veiðimenn. Við erum ekki seljendur veiðileyfanna heldur milliliður sem auðveldar viðskiptin.

Bókanir

Allar bókanir eru bindandi þegar greiðsla hefur farið fram. Veiðileyfi er bundið við nafngreindan einstakling og er ekki framselanlegt nema annað sé tekið fram af viðkomandi veiðifélagi.

Afpöntun

Greidda bókun er ekki hægt að afpanta hér á vefnum. Viljir þú afpanta skaltu hafa samband við veiðifélagið sem selur leyfið, eða við okkur á veidum@veidum.is. Veiðifélagið ákveður hvort og fyrir hvaða daga bókun er endurgreidd, samkvæmt eigin reglum. Endurgreiddur dagur er endurgreiddur að fullu, þjónustugjald meðtalið, inn á kortið sem greitt var með. Ógreidd bókun fellur sjálfkrafa niður ef hún er ekki greidd. Berist greiðsla eftir að bókun er fallin niður og einhver dagur hennar er ekki lengur laus, er greiðslan endurgreidd að fullu.

Ábyrgð

veiðum.is ber ekki ábyrgð á aðstæðum á veiðisvæðum, veðri, veiðiafla eða öðru sem tengist sjálfri veiðinni. Öll veiði er á ábyrgð veiðimanns.